Global

27.10.04

Highlights!

|

meira 10/11
Mín trítlar sér út í 10/11 og verslar þar einn kexpakka. Afgreiðsludúddinn rennir kexinu í gegn og segir svo: Fannstu allt sem þig vantaði?
Getiði ímyndað ykkur þegar andlitið dettur af manni... HA? - Fannstu allt sem þú varst að leita að? (fyrsta sem mér datt í hug var hvort hann hafi verið að lesa bloggið hjá mér eða þá að ég væri með svona óeðlilegan verslunarmáta núna). Jæja, ég eymingjast til að segja Já já, fann allt...
- hann glottir og ég trítla út eins og aumingi með kexpakka...

|

You keep me open like the 7-11
Næst þegar ég fer í 10/11 þá ætla ég að tala ensku!
Breska konan sem stóð í röðinni fyrir framan mig fékk afgreiðslugaukinn til að finna fyrir sig sódavatn og kalda svala og svo sendi hún hann aftur inn í búðina með orðunum... " I really just couldn't see any.." Afgreiðslupilturinn bauð henni poka og setti svo í pokann fyrir hana og og þá fannst mér þetta nú orðið gott. Jæja, svo kemur röðin að mér, hinni litlu ofuríslensku mér, hann skutlaði vörunum í gegn og sagði 532kr. viltu afrit? Mér var ekki boðinn neinn poki og ekki fékk ég heldur "have a nice day" í lok afgreiðslunnar.
Kannski ég prófi að tala ensku næst og senda starfsmenn bara í verslunarleiðangur fyrir mig á meðan ég stend á kassanum.

|

4.10.04

er að prófa nýja hluti

Hinir nýju hlutir

|

Æðisleg helgi.
Ég átti alveg yndislega helgi.
Á laugardaginn átti Gunnsteinn afmæli og var dagurinn tekinn frekar snemma af því tilefni - því ég fór með hann í nudd á Nordica Spa (æðisleg afmælisgjöf, finnst mér). Dasaður var afmælisdrengurinn dreginn til Jóa Fel þar sem hann fékk hressingu og síðan var keypt smá afmælisgjöf í Kringlunni. (Menn verða nú alltaf að fá einn pakka líka).
Uppúr kl. 16 fór fólk að mæta í kaffi til okkar - engar áhyggjur, við höfðum nóg pláss fyrir alla sem mættu og gott betur - Kökur, heitur réttur og snittur runnu ljúflega niður enda ekki við öðru að búast. Þegar síðustu gestirnir fóru ákvað Gunnsteinn að renna aðeins út á lífið - búið var að bjóða í innflutningspartí og hann vildi kíkja þangað,en ég vildi vera heima því ég er ólétt og leiðinleg. (lesist: að búa til barn tekur gríðarlega orku og ég var alveg búin á því eftir daginn)

Á sunnudaginn gerði ég lítið af viti, lá bara uppi í rúmi/sófa og lét fara vel um mig með fæturna upp í loft. Kíkti í saumó og fannst það geggjað - alltaf gaman að hitta stelpurnar ;)
Þarf svo að muna að heyra í þeim mun meira - I have the time and energy now.

G.

|

29.9.04

Ég skrapp frá í klukkutíma í hádeginu og það gerðist hreinlega allt á þessum eina klukkutíma!
Jón Steinar var skipaður hæstaréttardómari
Ein úr vinnunni sett héraðsdómari, ein sem ég þekki fékk ekki vinnu sem sig langaði í og frænka sem ég þekki sama og ekki neitt fékk vinnu hér.
Ég bíð eftir frekari fréttum af því sem gæti hafa gerst í minni fjarveru - þó stutt hafi verið.

|

Ég skrapp frá í klukkutíma í hádeginu og það gerðist hreinlega allt á þessum eina klukkutíma!
Jón Steinar var skipaður hæstaréttardómari
Ein úr vinnunni sett héraðsdómari, ein sem ég þekki fékk ekki vinnu sem sig langaði í og frænka sem ég þekki sama og ekki neitt fékk vinnu hér.
Ég bíð eftir frekari fréttum af því sem gæti hafa gerst í minni fjarveru - þó stutt hafi verið.

|

28.9.04

Ó gvuð, hvað er að gerast með kroppinn á manni!
Við skulum yfirstíga hið efnilega "ég stækka" og einblína aðeins á þá staðreynd að ég þurfi að hafa eina þaulreynda óléttubínu til að útskýra fyrir mér alla mögulega og ómögulega hluti.
Jóhanna Ýr - ég fer að koma í heimsókn að sjá litluna þína - nota það sem afsökun því mig vantar svör.

|

27.9.04

Mandarín..
Var að gúffa í mig mandarínu og hún var algjörlega góómsæt. Reyndar komu svona nett súrir bitar inn á milli en umm umm umm.

|

23.9.04

Stelpustund.
Eftir að hafa fundist ég eiga skilið að fara og versla dýrindis skó, fara í nudd og klippingu og á snyrtistofu og borða allt sem mig langar í og fara út á lífið.. ákvað ég láta dekra smá við mig í dag.
Svo er stefnan sett á að fara aftur í næstu viku í smá stelpudekur aftur.
Hver veit.. kannski verð ég komin í fallegu rauðu, háu skóna sem mig dreymir um í desember...

|

18.9.04

Hvern langar að dansa?

|

Eftir að hafa fengið súkkulaðiköku, popp, hlaup og spræt fyrir kl. 14 í dag var ég bara í sykursjokki.
Svo var kíkt aðeins í húsasmiðjuna og verslað, þaðan var stefnan tekin heim í heiðardraslið þar sem ég sá mér nú aldeilis fært að skríða aðeins upp í rúm og lúra í 20 mínútur.
Fór svo á Brennsluna að hitta dömur, takk fyrir hittinginn stelpur! og lagði af stað heim aftur um kortér yfir 8. Hringdi í kallinn og hann vildi mat svo ég stakk upp á börger fyrir hann.. um níuleytið skriðum við út af Kentökkí og ég uppgötvaði að mig langaði bara ekkert í kenna frænda en hey..
Heim var haldið enn á ný og kallinn rauk út eiginlega strax aftur til að fara á djamm með vinunum (eins og allir verðandi feður gera - reyna að sletta úr klaufunum áður en erfinginn mætir á svæðið).
Skrýtið samt að ég er ekkert í neinum fíling að fara á skrall, reyndar er ekki mjög gaman að fara á sveitta staði með bumbuna út í loftið og vona að enginn gefi manni vænt olnbogaskot í magann á þröngt setnu dansgólfinu, en mig langar bara ekkert út á skrall. Langar bara heim að sofa - og sofa.. nú eða leggjast og leggja mig.. þvílíkt happening líf.

|

16.9.04

Alheimsvandræði og þrugl.
THE BUCK STOPS HERE!
Já, you heard me!
Hvað er fólk að meina þegar það það segir "voðalega ertu orðin myndó"? Mér finnst þetta bara frekar dónalegt, ekki horfi ég á fólk og segi svo mikið rosalega hefur þú fitnað! eða ji, það var mikið að þú varðst kynþroska..
And by the by.. segir maður þetta ekki við krakka sem eru að byrja að búa og geta ómyndast til að baka vöfflur handa manni?
Eða hvað?

Ein frekar reið og "Myndó" og ég var ekki að baka neitt!!!

|

Elsku Róbert litli, til hamingju með ammlið í gær ;)

|

15.9.04

Yoga.
Já, eftir öll loforðin um að fara aldrei í jóga ákvað ég að skella mér í tíma í dag. Hrikalega var þetta erfitt eitthvað, teygjur og standa og anda og anda.. Og hvað er hringöndun?

|

14.9.04

Little secrets..
I've got little secrets and perhaps even a little something in store for someone special. How I love seeing the surprised "Awh" move over beautiful faces.

|

Mikið hlakka ég til að fara aftur í skólann :)

|

 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com